Vestfirðingar hvattir til að slökkva ljósin
Það má búast við því að það líti út eins og enginn sé heima í eina mínútu um alla Vestfirði á föstudag.
Hrint hefur verið af stað átaki á samskiptasíðunni Facebook þar sem Vestfirðingar eru hvattir til að slökkva öll ljós á heimilum sínum á föstudag. Að sögn Guðjóns Más Þorsteinssonar, upphafsmanns átaksins, er það gert til að mótmæla niðurskurði ríkisstjórnarinnar sem virðist miða að því að leggja niður byggð í fjórðungnum. „Ríkisstjórnin vill að við flytjum héðan ef marka má vinnubrögðin. Slökkvum ljósin á heimilum okkar og fyrirtækjum á föstudag, 5. nóvember kl. 19.00 í eina mínútu og sýnum þeim að við séum að flytja suður. Það virðist vera áætlun þeirra,“ segir í tilkynningu. Guðjón bendir á að skilaboðin eiga heima á landinu öllu og vonast eftir góðri þátttöku.
Frétt fengin í heild sinni af bb.is