Forsíða Þjónusta
Fréttir Fyrirtækið

Snjór og hálka á vegum landsins
5.11.2010

 

Snjór og hálka á vegum landsins

"Það er rétt að vara ökumenn við því að snjór og hálka er víða á vegum landsins og ekki hvað síst á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt lögreglu urðu í gær um 30 umferðaróhöpp sem rekja má til hálku á höfuðborgarsvæðinu.

Umferðarstofa biður fólk um að gæta þess að hjólbarðar séu ekki slitnir og að loftþrýstingur sé réttur. Hvort tveggja hefur mikil áhrif á aksturseiginleika bílsins og öryggi. Hægt er að sjá í hurðafalsi ökutækis hver loftþrýstingurinn á að vera. Þá er mönnum bent á að nota almenningssamgöngur eða leigubíla ef dekkjabúnaður bílsins er ekki upp á sitt besta.

Vegir eru víðast hvar auðir á Suðurlandi þó eru hálkubletti í uppsveitum, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Á Vesturlandi er snjóþekja og snjókoma á Holtavörðuheiði og snjóþekja á Bröttubrekku. Hálka eða hálkublettir eru á öðrum leiðum. Norðurlandi er hálka og snjóþekja á flestum láglendisleiðum. Á Austurlandi er þæfingsfærð frá Egilsstöðum að Jökuldal og er verið að hreinsa. Hálka og éljagangur er á Fjarðarheiði,
og sjóþekja á flestum öðrum leiðum þó eru auðir vegir frá Reyðarfirði og suður úr."

Frétt fengin af mbl.is 4.nóvember. 


<< Til baka

Innskráning
Hafa samband

Þjónustunúmer:
436 6500

Netfang:
arnijon@arnijon.is

Áhugaverðar vörur

Frumvarp til laga um höfn á Rifi (1946)
Hrafn, komd þú sæll!

Tenglar


Leit

Leitarorð:




Vélsmiðja Árna Jóns | Smiðjugötu 6 | 360 Hellissandur (Rif) | Um vefinn