Forsíða Þjónusta
Fréttir Fyrirtækið

Breytingar á reglugerð um hrognkelsaveiðar
24.2.2011

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur gefið út reglugerð um breytingu á reglugerð um hrognkelsaveiðar. Samkvæmt þeim verður hvert leyfi nú gefið út til 50 daga í stað 62 áður og óheimilt er að hefja veiðar með yfirtöku hrognkelsaneta í sjó. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að þetta muni meðal annars hafa áhrif þar sem sami aðili er með fleiri en einn bát við hrognkelsaveiðar en samkvæmt breytingunni verður skylt að taka net úr sjó þegar leyfi rennur út og ganga frá merkingu neta í landi.

Aðrar breytingar séu minniháttar, svo sem að nú er grásleppuútgerðum gert auðveldara að nota svokölluð lambamerki til merkinga á grásleppunetum og veiðisvæði hafa verið hnitasett.

Skessuhorn.is


<< Til baka

Innskráning
Hafa samband

Þjónustunúmer:
436 6500

Netfang:
arnijon@arnijon.is

Áhugaverðar vörur

Frumvarp til laga um höfn á Rifi (1946)
Hrafn, komd þú sæll!

Tenglar


Leit

Leitarorð:




Vélsmiðja Árna Jóns | Smiðjugötu 6 | 360 Hellissandur (Rif) | Um vefinn