Varað við flóðbylgjuhættu
mbl.is/Elín Esther
Í kjölfar jarðskjálftans sem varð við strendur Japans í morgun varar utanríkisráðuneytið við flóðbylgjuhættu á ströndum við Kyrrahaf.
Ráðuneytið ráðleggur Íslendingum sem vita um vini og ættingja á þessum svæðum að setja sig í samband við þá og fullvissa sig um að þeir séu meðvitaðir um hættuna og haldi sambandi við ættingja sína á Íslandi eftir atvikum.
Fólk sem hefur áhyggjur af ættingjum sem eru staddir á hættusvæðinu er beðið að hafa samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins í síma 545-9900.
Ráðuneytið hefur virkjað viðbragðsáætlun og ráðleggur Íslendingum á þessu svæði að fylgjast grannt með viðvörunum stjórnvalda og fjölmiðlum á staðnum.
Frétt fengin af mbl.is