Nr. 14/2011
Strandveiðar
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um strandveiðar fiskveiðiárið 2010/2011.
Þetta er þriðja sumarið sem frjálsar handfæraveiðar með takmörkunum á heildarmagni eru heimilaðar en lög um þær tóku fyrst gildi 19. júní 2009 og voru síðan styrkt síðastliðið vor með lögum nr. 32/2010 um breytingu á lögum 116/2006 um stjórn fiskveiða. Með strandveiðum hefur náðst umtalsverður árangur í þá veru að örva og styrkja atvinnustarfsemi í sjávarbyggðum.
Reglugerð ráðherra nú tekur mið af þeirri reynslu sem komin er af strandveiðum síðastliðin sumur og eru breytingar frá fyrra ári óverulegar.
Aflaheimildir samkvæmt reglugerðinni skiptast á fjögur landsvæði með eftirfarandi hætti:
- Eyja- og Miklaholtshreppur - Súðavíkurhreppur. Í hlut þess koma alls 1.996 tonn sem skiptast á þann veg að heimilt er að veiða allt að 499 tonnum í maí, 599 tonnum í júní, 599 tonnum í júlí og 299 tonnum í ágúst.
- Strandabyggð - Grýtubakkahreppur. Í hlut þess koma alls 1.420 tonn sem skiptast á þann veg að heimilt er að veiða allt að 355um tonn í maí, 426 tonnum í júní, 426 tonnum í júlí og 213 tonnum í ágúst.
- Þingeyjarsveit - Djúpavogshreppur. Í hlut þess koma alls 1.537 tonn sem skiptast á þann veg að heimilt er að veiða allt að 231 tonni í maí, 307 tonnum í júní, 538 tonnum í júlí og 461 tonni í ágúst.
- Sveitarfélagið Hornafjörður - Borgarbyggð. Í hlut þess koma alls 1.047 tonn sem skiptast á þann veg að heimilt er að veiða allt að 419 tonnum í maí, 366 tonnum í júní, 157 tonnum í júlí og 105 tonnum í ágúst.
Hér er eina breytingin frá fyrra ári sú að tilfærsla hefur verið gerð milli tímabila á svæði C, þar sem skiptingin var á fyrra ári þannig að hlutfallslega meira kom áður til veiða á fyrri hluta tímabilsins og byggir þessi breyting á reynslu síðasta árs.
Hlutfallsleg skipting aflaheimilda eftir mánuðum er:
|
maí |
júní |
júlí |
ágúst |
samtals |
Svæði A |
25% |
30% |
30% |
15% |
100% |
Svæði B |
25% |
30% |
30% |
15% |
100% |
Svæði C |
15% |
20% |
35% |
30% |
100% |
Svæði D |
40% |
35% |
15% |
10% |
100% |
Sem fyrr er sama fiskiskipi aðeins veitt leyfi til strandveiða á einu landsvæði á fiskveiðiárinu. Þá hefur sú breyting tekið gildi að óheimilt er að veita fiskiskipi leyfi til strandveiða hafi aflamark umfram það aflamark sem flutt hefur verið til þess á fiskveiðiárinu, verið flutt af því. Eftir útgáfu leyfis til strandveiða er skipum óheimilt að flytja frá sér aflamark ársins umfram það sem flutt hefur verið til þeirra.
Heimild: Sjávarútvegs og Landbúnaðarráðuneytið.