300 bátar máttu hefja strandveiðar
Siglt til strandveiða frá Arnarstapa mbl.is/Heiðar
Alls höfðu 298 bátar fengið útgefin leyfi til að hefja strandveiðar í gærmorgun er veiðarnar máttu byrja.
Mikið álag var í stjórnstöð siglinga og voru um 830 skip á sjó þegar mest var í gærmorgun, þar af um eða yfir 700 íslensk. Aðstoða þurfti þrjá báta úr strandveiðiflotanum vegna bilana.
Eftirlit Fiskistofu með strandveiðum verður í ár með sama hætti og var í fyrra. Stofnunin fylgist með sjálfvirka staðsetningarbúnaðinum sem allir bátar eru skyldugir að hafa um borð og getur þannig haft eftirlit með siglingum bátanna og lengd veiðiferðanna.
MBL.IS