Forsíða Þjónusta
Fréttir Fyrirtækið

Skýrsla um gæði strandveiðiafla
19.9.2011

 

Skýrsla um gæði strandveiðiafla

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kynnti  í liðinni viku skýrslu Matís um gæði strandveiðiafla í sumar. Niðurstöður hennar sýna framför í meðferð og kælingu afla strandveiðibáta. Skýrsluhöfundar telja að strandveiðiflotinn standist í þeim efnum samanburð við hina hefðbundnu dagróðrabáta.  Þá er blóðgun strandveiðiafla talin fullnægjandi að mati kaupenda. Það að aflinn er með góðu lífsmarki þegar hann kemur um borð stuðlar að því að fiskurinn blóðtæmir sig vel. Aftur á móti er stærðarflokkun strandveiðiaflans ófullnægjandi, talsvert er um hringorm og þaraþyrskling í afla sem dreginn er svo nærri landi og bæta má verulega úr röðun og frágangi í ker hjá strandveiðibátum og sama gildir um aðra dagróðrabáta.

 

Skýrsluhöfundar benda á að setja þarf skýrari reglur um slægingu strandveiðiafla og leggja áherslu á bætta meðferð meðSkýrsluhöfundar benda á að setja þarf skýrari reglur um slægingu strandveiðiafla og leggja áherslu á bætta meðferð með aukinni fræðslu, að bannað verði að fara íslaus á sjó og að áfram verði lögð áhersla á mælingar og eftirlit. Auk Matís komu að gerð skýrslunnar Fiskistofa, Matvælastofnun og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti.

Frétt:


<< Til baka

Innskráning
Hafa samband

Þjónustunúmer:
436 6500

Netfang:
arnijon@arnijon.is

Áhugaverðar vörur

Frumvarp til laga um höfn á Rifi (1946)
Hrafn, komd þú sæll!

Tenglar


Leit

Leitarorð:




Vélsmiðja Árna Jóns | Smiðjugötu 6 | 360 Hellissandur (Rif) | Um vefinn