"Á mánudaginn var Freydís Vigfúsdóttir, doktorsnemi við Háskólasetur Snæfellsness, ásamt fylgdarliði við athuganir í kríuvarpinu við Rif þegar hún sá kríurnar gera harða atlögu að einhverju. Í fyrstu sást lítið til meints afræningja í
varpinu en við nánari könnun sást að um branduglu var að ræða. Uglan var nær dauða en lífi eftir árásina en Freydís tók hana með sér á Náttúrustofuna til aðhlynningar.
Eftir hvíld og að hafa rifið í sig tvo hrossagauka sem fundust í frysti Náttúrustofunnar er uglan nú mun hressari. Henni verður sleppt aftur
við Rif þegar hún hefur náð fullum bata."
Frétt fengin af heimasíðu Náttúrustofnun Vesturlands.