Forsíða Þjónusta
Fréttir Fyrirtækið

Grænlenskt jökulvatn
19.7.2010

 

Grænlenskt jökulvatn selt á sex þúsund kr. flaskan í Dubai

"Bráðið jökulvatn frá Ilulissat á Grænlandi sem tappað er á glerflöskur selst fyrir rúmar 6.000 krónur á flöskuna í Dubai. Jökulvatnið sem hér um ræðir er sett á sérframleiddar glerflöskur þar sem tappinn er einnig úr gleri og merkimiðinn á flöskunum er handskrifaður þar sem lýst er innihaldi þeirra. Ekki er um verksmiðjuframleiðslu að ræða því vatninu er tappað handvirkt á flöskurnar. Samkvæmt frétt í Politiken er það franski athafnamaðurinn Julien Caquineau sem á hugmyndina að þessum útflutningi en hann hefur búið á Grænlendi undanfarin þrjú ár. Julien er nú búin að fá öll tilskylin leyfi fyrir þessum útflutningi frá grænlensku heimastjórninni.

Eftirspurnin eftir þessu vatni er mikil í Dubai en Julien hefur þegar selt 30.000 flöskur af jökulvatni sínu þar í landi. Kaupendurnir í Dubai hafa þar að auki samið um einkaleyfi á þessu vatni í eitt ár en töluverð eftirspurn er eftir jökulvatninu í Bandaríkjunum, Singapore og Japan. Vinsældir vatnsins stafa m.a.af því að það er mjög tært og alveg bragðlaust."

Frétt fengin af visir.is

 


<< Til baka

Innskráning
Hafa samband

Þjónustunúmer:
436 6500

Netfang:
arnijon@arnijon.is

Áhugaverðar vörur

Frumvarp til laga um höfn á Rifi (1946)
Hrafn, komd þú sæll!

Tenglar


Leit

Leitarorð:




Vélsmiðja Árna Jóns | Smiðjugötu 6 | 360 Hellissandur (Rif) | Um vefinn